Þráðlaus sendistöð með innbyggðum hörðum diski.
Engar vörur
Time Capsule er þráðlaus sendistöð frá Apple sem hefur að geyma 1TB eða 2TB harðan disk. Aðgangur að disknum er einfaldlega þráðlaus en tækið nýtir sér nýjustu þráðlausu tæknina 802.11n. Kostur þess býr yfir mikilli hraðaaukningu og drægni á þráðlausu neti, en allar nýjar fartölvur frá Apple hafa þennan búnað. Þar að auki hefur stöðin að geyma fjögur Gbit Ethernet-tengi ásamt USB-tengi til þess að prenta þráðlaust eða tengja auka utanáliggjandi harðan disk við.
Time Machine (sjálfvirkt öryggisafrit) sem fylgir með Mac OS X vinnur frábærlega saman við Time Capsule, enda um sjálfvirka tækni að ræða þar sem fyrirhöfn er nánast engin.